Um Vaka þjóðlistahátíð

Velkomin á Vöku, þriggja daga þjóðlistahátíð sem samanstendur af tónlist, dansi, vinnustofum og matarveislu.
Á Vöku fléttast fornar hefðir við nútímann og sérstök áhersla er lögð á þátttökumenningu. Tími rímnalagsins, þjóðlagsins, langspilsins, tvísöngsins, vikivakans og rælsins er runninn upp! 

Saman endurvekjum við dýrmætar hefðir, búum í leiðinni til nýjar og sköpum ógleymanlega upplifun.

Hátíðin verður sett þann 13. september í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 14. Þar mun Kvæðabarnafjelag Laufásborgar koma fram og kveða, einnig Tríó Zimsen og Rósa Jóhannesdóttir og Helgi Zimsen en þau munu flytja Dótarímur eftir Þórarin Eldjárn. Um kvöldið verða tónleikar í Fríkirkjunni kl. 20 með okkar fremsta þjóðlagatónlistarfólki. Eftir tónleikana heldur gleðin áfram á Ægi bar með samspils session sem er öllum opin. 

Laugardagurinn er helgaður vinnustofum af ýmsu tagi og endar á glæsilegri tónlistar-, dans- og matarveislu í Iðnó. Valkyrjan mun töfra fram sínar gómsætu, matarmiklu súpur ásamt brauði og salötum. 

Á sunnudeginum sem einnig er Dagur rímnalagsins standa Kvæðamannafélagið Iðunn og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum fyrir málþingi og tónleikum í Eddu - húsi íslenskunnar og er sú dagskrá öllum opin. 

Hátíðarpassi sem gildir á alla viðburði kostar 11.900

en einnig er hægt að kaupa sig inn á staka viðburði og við hurð. 

Vökufélagið er sjálfstætt félag og aðgangseyrir er stór partur af fjármögnun þess. Miðaverði er stillt í hóf en við bjóðum þeim sem hafa eitthvað aflögu og vilja auka veg þjóðlista að setja inn upphæð að eigin vali yfir lágmarkinu. Við erum ótrúlega þakklát fyrir allan stuðning! 

/